Þú hefur búið í íbúð þar sem eru 3
sófar og enginn þeirra í stíl.
Þú lýtur á McDonalds ostborgara og franskar
sem fjölbreytilega máltíð.
Þú hefur notað debetkortið þitt til þess að
borga færslu upp á 20 kr.-
Þú átt glæsilegt safn af tómum
bjórflöskum.
Þú hefur séð tvær sólarupprásir í röð án þess
að sofa.
Glasasafnið þitt samanstendur af pappaglösum
frá McDonalds og 10/11.
Nærfötin þín grotna niður á milli
þvotta.
Þú manst ekki hvenær að þú þvoðir bílinn þinn
seinast.
Þú getur safnað saman öllum þínum veraldlegu
eigum í skottið á bílnum þínum í einni ferð.
Þú hefur þurft að réttlæta fyrir sjálfum þér
að kaupa halogen lampa.
Það fyrsta sem þú gerir á morgnanna er að
velta þér á hliðina og kynna þig.
Þér finnst eðlilegt að fara að sofa klukkan 3
á nóttunni.
Þú lýtur á pizzu sem einn af 4 stærstu
fæðuflokkunum.
Þú lýtur á hina 3 sem bjór, McDonalds og
kaffi.
Þú mannst ekki hvenær mamma þín á afmæli eða
augnlitinn hjá kærastanum þínum/kærustunni þinni en þú kannt
númerið hjá Dominos utan að.
Þú hefur misst úr tíma til þess að ná
endursýningunum á Skjá1.
Þú hefur spjallað við meðleigjendur þína á MSN
þegar að þið eruð heima hjá ykkur.
Þú hefur leitað lengi eftir svarta kortinu
þínu frá Visa bara til þess eins að fá ódýrari bíómiða í
sambíóin.
Þú hefur vakað alla nóttina til þess eins að
missa ekki af fyrsta tímanum á morgnanna.
Þú heilsar starfsfólkinu í sjoppunni næst
skólanum með nafni.
Þér finnst ekkert óeðlilegt við það að eyða
laugardagskvöldum í lærdóm.
Þú hefur einhverntímann, sem hluta af
skólaverkefni, fylgst með hvernig efni frá þér berst um
internetið.
Þér bregður við að hitta fólk sem hvorki þarf
né vill lesa bækur.
Þú hefur farið með bækur úr skólanum á bar til
þess að lesa.
Þú gefur kaffihúsunum einkunn eftir því hversu
gott þráðlausa netið er þar og hvort að þar séu innstungur fyrir
ferðatölvuna þína.
Þú vitnar í skólabækurnar í samtölum við vini
og kunningja.
Þú tengir allt sem þú sérð og heyrir við
eitthvað sem þú hefur nýlega verið að læra um.
Þú hefur eitt meira en 1000 kr.- í ljósritun á
Þjóðarbókhlöðunni í heimildarvinnu fyrir eitt verkefni.
Bókasafnskortið þitt ber greinileg merki
ofnotkunar.
Heilbrigður morgunmatur að þínu mati er kaffi
og sígaretta.
Þú kannt leiðarkerfi strætó utan
að.
Þú getur sagt fyrir um hvað klukkan er út frá
fjölda nemenda á bókasafninu hverju sinni.
Það er tölva á bókasafninu sem þú lítur á sem
„þína:“
Þú lítur á samviskubit sem óbeina
afslöppun.
Þér hlakkar til þess að þvo vegna þess að
gefur þér smá tíma til afslöppunar.
Þú átt fleiri nemendafélags- og
afsláttarskírteini heldur en debet- og kreditkort.
Þú getur eldað og verið að glugga í
skólabókunum á sama tíma.
Þú skipuleggur frí miðað við lestraráætlanir
þannig að þú vinir þínir getið lært saman.
Þér finnst afslappandi að sitja í
almenningsgörðum og glósa.
Þú stendur sjálfan þig að því að vitna í
heimildir í samtölum.
........ rændi þessu af eikkuri síðu.
Óhugnarlega mörg já